Hvernig er best að Skreyta Hús? (spoiler alert - svarið er list)
Updated: Oct 25, 2022
Þegar við skreytum okkar fyrstu íbúð, herbergi eða skrifstofu er auðvelt að fá ofsa valkvíða. Allt frá hvaða máling er best að nota, yfir í hvernig húsgögn og hverskonar aukahluti við viljum. Það er ekki óeðlilegt að missa sig pínu í stressinu og spenningnum, þess vegna er hér eitt ráð til að hjálpa við skreytingu umhverfi okkars. En það verður alltaf eitt sem er ómissandi í rýmin okkar, og það er list.
Að labba inní hvítt herbergi með einungis húsgögnum og aukahlutum getur valdið miklum ópersónuleika, en strax og við skvettum pínu list inní dæmið, eins og t.d. með málverkum verður rýmið stútfullt af lit, menningu og persónuleika. Það er ekki að ástæðulausu, því listin minnir okkur á tilfinninguna að vera mennsk. Hún er ómissandi í rýmin okkar, því án hennar týnist þessi mennska tilfinning, afhverju ætli hellisbúar fortíðar hafi skreytt sína veggi af allskonar myndum og sögum, jú til að finna heimleika á heimilum sínu. Það hefur margt breyst frá þeim tíma, en listin hefur fylgt okkur frá örófi alda. Svo afhverju að breyta því núna, þess í staðinn er jafnvel kominn tími til að auka listina.
Málverk og aðrir miðlar sem og skúlptúr gerir margt fyrir rýmin okkar, en hvað ef að við viljum prófa eitthvað nýtt. Eitthvað sem fáir aðrir hafa, eitthvað sem virkilega bætir rýmin okkar til hins betra? Þá er ég svo sannarlega með svarið fyrir þig. Það er einfaldlega vegglist.

Það getur verið erfitt að sjá möguleika vegglistarinnar í rýmum okkar án þess að raunverulega vita hversu mikið hún gerir. Þess vegna er ég hér;
Hæ, ég heiti Karen Ýr og er vegglistamaður, og mig langar að deila með þér fegurð vegglistar og hvernig hún getur breytt íbúðinni, herberginu og skrifstofunni til hins betra.
Vegglist er eitt af þessum hlutum sem við tökum ekki eftir fyrr en að okkur er bent á hana. En strax og hún hverfur sést munurinn á umhverfinu í kring. Því að vegglist lífgar upp umhverfið á máta sem fátt annað getur. Hún blandast inní umhverfið óaðfinnanlega, sérstaklega í íbúðum og skrifstofum, því blandað inní húsgögnin og hvernig kosið er að skreyta fleira þá er vegglistin alltaf í bakgrunninum sem brennidepill á rýminu í heild.
Hvað þýðir það nákvæmnlega? Jú vegglist er í bakgrunninum og sem listaverk á veggnum eru húsgögn, hillur eða skápar fyrir verkinu. Þannig já vegglistaverkið er í bakgrunninum en því verkið er stútfullt af litum og fegurðleika fer það auðvitað ekki framhjá manni. En þegar horft er nær virðist vegglistin draga saman rýmið í heild, og eða er jafnvel brennidepillinn á rýminu.
Vegglist er lífið mitt, og er þar með auðvelt fyrir mig að sjá möguleika hennar, en það er eitt áhyggjuefni sem viðskiptavinir mínir eiga oft áður en er dempt í verkefni; er vegglist alltof stór fyrir heimilið?
Er Vegglist alltof Stór fyrir heimilið?
Flest okkar hafa séð vegglistaverk, það er ekki eins og hún sé smá heldur, en t.d. á götum Reykjavíkur má sjá mörg stór vegglistaverk. En þaðan kemur einmitt þessi hugmynd að meiri "popp" í rýmið, það er frábært, og við flest getum verið sammála um að hún gerir mikið fyrir okkar almennu rými, en hvað þá með persónulegu rýmin okkar? Sumir mundu segja að vegglist gæti jafnvel verið aðeins of mikil fyrir oft okkar smáu persónulegu rými.
Ég gæti ekki verið meira ósammála, því þegar vegglistaverk er vandað, með heildar rýmið í huga og sérhannað fyrir þarfir eigandans verða töfrar til. Á þessum stundum má sjá rýmin okkar fyllast í heild sinni að fegurð og persónuleika okkar, þar með verða heimilin okkar heimilislegri og ennþá frekar áhugaverðari. Það eru svo sannarlega margir möguleikar sem hægt er að ná fram með vegglistinni, þá sérstaklega þessi samheildni á rýminu í heild og persónulegra heimili.
Þegar kemur að fagmannslegum umhverfum eins og skrifstofum getur sagan verið önnur. Það er ekki oft leitast í að gera skrifstofur persónulegar, þá getur vegglistin mun frekar verið nýtt í að lífga upp rýmið. Það finnst engum gott að vera umkringdur hvítum og gráum litum allann liðlangann daginn, oft starandi á tölvuskjá með fátt fallegt í kringum sig. Hvernig er hægt að laga þetta? Jú, með vegglist! Ofan á allt annað færir þetta upplífgaða rými nýjann karakter inní gráa rýmið og liftir jafnvel skapi starfsfólks.
Vegglist er Ómissandi
Hvort sem skreyta þarf barnaherbergi, skrifstofuna, hjónaherbergið eða salernið, vegglist er ómissandi valkostur inní hversdagslegu rýmin. Því hún dregur inn allt hið frábæra sem listinn gerir núþegar og hækkar hljóðið margfalt, hún breytir og þróar hvernig við hugsum um rýmin okkar og hvernig við viljum hafa listina í kringum okkur. Þannig óþarfi er að hugsa sig tvisvar um áður en tekin er ákvörðun um að fá sér vegglistaverk...
Eða jú okay, vegglist er svoldið stórt verkefni þannig alltílagi að hugsa sig tvisvar um, en frá minni reynslu klikkar vegglist sjaldan. Þannig ekki missa af nýjasta trendinu, hægt er að skoða meira um möguleika vegglistar hér að neðan:



Comments