top of page

Vegglist + Barnaherbergi = Raunverulegur Töfra Heimur?

Jun 18, 2022
2 min read

Það er margt sem gerist þegar máluð er vegglist, í fyrsta lagi lífgar hún upp umhverfið, myndar nýjan áhuga vegfarenda og uppáhaldið mitt; hún myndar glænýjann töfra heim í rými sem áður fyrr var grátt.


Vegglist er oft litin framhjá sem möguleiki inná heimilin okkar, hún er oft talin sem list götunnar. Ég gæti ekki verið meira ósammála, og í umræði við þennan töfra heim sem glóir frá vegglist má svo sannarlega ekki missa af þegar kemur að barnaherbergjum. Svo hér eru nokkrar hugleiðingar gagnvart hlutverki vegglistar í lífi barnanna okkar.


Nú á dögunum fékk ég þann heiður á að skreyta vegg í frístundaheimilinu Glaðheimar, þar lærði ég svoldið skemmtilegt. Taktu eitt stykki kulalegt, ópersónulegt herbergi og skvettu nokkrum litum, skemmtilegri mynd og alltí einu ertu komin með töfra heim. Töfra heim sem krakkar (113 talsins) fá að eiga. Ég skal sko segja ykkur, þegar krakkarnir í frístundaheimilinu fengu í fyrsta skipti að sjá vegglistaverkið í heild sinni var eins og augun þeirra glitruðu af möguleikum ævintýra og söguþráða inní þessum nýja töfra heimi. Þessum nýja töfra heim sem þau gátu snert og raunverulega tilheyrt. Eitthvað sem áður fyrr hefði einungis tilheyrt ímyndunarafli.

Vegglist í Frístundaheimilinu Glaðheimar


Allt í einu var nýr heimur til að sökkva sig niður í, stútfullur af litum og ævintýrum. Því vegglist ýtir undir hugmynaríkan leik og breytir anda umhverfis til hins betra. Hún veitir börnunum okkar séns á að upplifa töfra heiminn sem er uppí kollinum.


Þetta dæmi á við um vegglist í frístundaheimili með 113 börnum, næsta spurning er hvernig blandan breytist þegar eitt eintak barnaherbergis kemur við sögu.


Nú skal ég sko segja 😎 Blandan verður ennþá stærri, ennþá betri og mikilvægast af öllu; ennþá persónulegri! Möguleikarnir verða óteljandi, allt með ímyndunarafl barnsins, foreldris og listamanns í huga verða til töfrar í raun heiminum.


Persónulega hef ég málað allt frá töfra frumskógin, til fallegs landslags, til þess að skreyta vegginn fullann að heimilsdýrunum. Fegurðin í vegglistinni er sú að hægt er að gera hvað sem er, hægt er að fylgja áhugamáli barnsins, gera uppáhalds kvikmynda/sjónavarps heiminn (hugsaðu t.d. Harry Potter😉), eða hvað sem kemur barninnu inní sinn ævintýraheim, þessi ævintýraheimur sem áður fyrr tilheyrði einungis ímyndunaraflinu.


Þegar ég var barn hefði þetta verið draumurinn, við eflaust munum öll eftir að skoða teiknimyndasögur í uppáhals bókunum okkar og gjörsamlega sökkvast inní heiminn. En sagan var ekki raunveruleg, hún tilheyrði bókinni. Vegglist getur breytt því, hún gerir söguna raunverulega, snertanlega. Heimurinn verður raunstór eins og hann sé beint fyrir framan okkur.


Loka niðurstaðan er þessi, vegglist er ómissandi inní barnaherbergið. Svo núna er tækifærið, búum saman til töfra heim sem barnið þitt getur þótt vænt um mörg ár fram í tímann. Töfra heim sem mun ávallt lifa.


Til að læra meira um möguleika vegglistarinnar má sjá meira hér að neðan:





Comments


  • Instagram
  • Facebook
  • Youtube
  • TikTok
bottom of page